Fraction of heaven

18. september 2007

 

Ég er hér og ég er lifandi. Hlutirnir eru kannski ekki alveg frábærir en ég er þó hér.

 

Stund milli stríða

Ætli það sé ekki það sem lýsi hlutunum bara best eins og þeir eru í dag, akkúrat núna á þessari mínútu. Svona eins og þegar þú finnur strætó purra undir rassinum á þér, í myrkinu úti, og þú hefur ekki hugmynd um hvert þú ert að fara eða hvenær þú kemst heim til þín. Þannig eru hlutirnir bara.

Óvissa

 

Klukkan er 10mín í 11 á þriðjudagskvöldi og Akureyri sefur

Allir nema nokkrar sálur sem "rúnta" um á hvítum Imprezum hring eftir hring

Örfáa eldri kalla sem að sitja og sötra bjór inná Kaffi Ak

Og svo ég

 

En ætli það sé samt ekki best að ég fari að sofa líka...

 

 

 

 

 

næsta síða ->

Aldís D